30.08.2011 00:22:21 / valurhb7kv
7.flokkur kvenna
Í 7.flokki kvenna eru haldin 3 mót og eru þau eftirfarandi:
- Helgin 11.-13. nóvember - Umsjón ÍR
- Helgin 03.-05. febrúar - Umsjón HK
- Helgin 13.-15. apríl - Umsjón Selfoss
Þjálfari: Karl Erlingsson sími 822-2553, netfang karlerlingsson@mac.com
Aðstoðarþjálfari: Anna Úrsúla Guðmundsóttir
mán kl.16:40-17:30, fim kl.15:50-16:40
blogsíða flokksins: www.valurhb7kv.blogcentral.is
»
12.11.2010 11:35:55 / valurhb7kv
Laugardaginn 13.nóvember verður tvenna í Vodafone höllinni
13.45 Valur - FH mfl kvenna
15.45 Valur - FH mfl karla Sjóvarpsleikur á RÚV
Mætum í rauðu, sitjum saman og styðjum Val til sigurs! Fyllum stúkuna af Valsmönnum
Áfram Valur
»
22.08.2010 20:47:34 / valurhb7kv
Æfingatímar
Mánudagar 16.40-17.30 salur 2
fimmtudagar 15.30-16.40 allir salir (geta farið á æfingu strax á eftir 16.40-17.30 með 7.kvenna í sal 3)
Þjálfari: Hrafnhildur Skúladóttir gsm 699-0902 hrabbaosk@simnet.is
Mót vetrarins
5.-7.nóv umsjón Haukar (7.kvenna)
4.-6.feb umsjón HK (7.kvenna)
11.-13.mars umsjón Stjarnan (8.flokkur)
1.-3. Apríl umsjon Selfoss (7.flokkur)
»
22.08.2010 20:39:01 / valurhb7kv
Æfingatímar
Mánudagar 16.40-17.30 salur 2
fimmtudagar 16.40-17.30 salur 3
Þjálfari: Hrafnhildur Skúladóttir gsm 699-0902 hrabbaosk@simnet.is
Mót vetrarins
5.-7.nóv umsjón Haukar
4.-6.feb umsjón HK
1.-3. Apríl Selfoss
»
30.07.2010 13:30:31 / valurhb7kv
Í ágúst verða 2 handboltanámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-11 ára, fædd 2004-1999.
Fyrra námskeiðið er frá 09.ágúst til 13.ágúst
Seinna námskeiðið er frá 16.ágúst til 20.ágúst
Námskeiðin eru frá kl 09.00-12.00 og verða krökkunum skipt upp í hópa eftir aldri og unnið með helstu atriði handboltans. Gestir koma í heimsókn og grillveisla á lokadegi þar sem leikmenn úr meistaraflokkunum kíkja við.
Verð: kr 5.000 vikan og ef skráð er á bæði námskeiðin þá kosta vikurnar tvær kr 8.000
Skráning:
">
skar@valur.is">oskar@valur.is og ragnhildur@valur.is
»
16.05.2010 23:27:35 / valurhb7kv
Mán 17.maí kl.16.30 er komið að því að gera upp veturinn hjá handknattleiksdeild Vals. Stelpurnar munu allar fá medalíur og á eftir mun verða kaffihlaðborð sem allir eru beðnir um að taka þátt í að fylla, þ.e að koma með eitthvað á borðið. Stelpurnar eru búnar að standa sig frábærlega í vetur og framfarirnar miklar. Það hefur verið frábært að vera með þeim í vetur og vona ég svo sannarlega að allar haldi áfram í handbolta.
Sjáumst hressar og kátar á uppskeruhátíðinni og kveðjum frábært handboltaár saman:-)
Hrafnhildur
»
25.02.2010 10:09:01 / valurhb7kv
Bikarúrslit 2010
Laugardaginn 27.febrúar
Upphitun að Hlíðarenda og húsið opnar kl 11.00. Candy floss og andlitsmálning fyrir krakkana.
300 fyrstu fá frían bol
Rúturnar leggja af stað 12.30
Konur 13.30 Fram - Valur
Karlar 16.00 Haukar - Valur
Áfram Valur!
»
08.01.2010 00:01:58 / valurhb7kv
Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is
»
23.11.2009 13:37:01 / valurhb7kv
sæl
Miðvikudaginn 25.nóv verður stórleikur í mfl kvenna en þá tekur liðið á móti Fram. Við ætlum að láta yngri flokkana sitja saman og styðja vel við liðið.
mið 25.nóv 19.30 Valur - Fram Vodafone
allir að mæta í rauðu, trommur og læti!!! Koma svo
»
12.11.2009 11:34:11 / valurhb7kv
Sunnudaginn 15.nóvember verða tveir heimaleikir í Vodafone höllinni og hvetjum við alla til að fjölmenna og styðja Val til sigurs. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV og því mikilvægt að við sýnum að við eigum marga og öfluga stuðningsmenn og yngri flokka sem mæta í rauðu og styðja sitt lið.
sunnudagur 15.nóv, Vodafone höllin, Hlíðarenda
14.00 Valur - Fylkir mfl kvenna
16.00 Valur - Fram mfl karla
Áfram Valur!
»
23.08.2009 23:18:04 / valurhb7kv
Mánudaginn 24.ágúst kl.16.40 verður fyrsta æfing tímabilsins. Æfingarnar verða á sömu tímum og í fyrra þ.e.a.s á mánudögum og fimmtudögum kl.16.40. Hlakka til að hitta ykkur hressar og kátar í Valsheimilinu. Endilega taka vinkonur með og láta þær prufa

Bestu kveðjur
Hrafnhildur
»
05.08.2009 10:16:15 / valurhb7kv
Skráningar í fullum gangi í handboltaskóla vals
Vikuna 10.-14. ágúst verður námskeið fyrir börn í handbolta í Vodafone höllinni. Námskeiðið verður frá 9-12 fyrir börn fædd 1999-2003 og kostar 5.000 krónur. Frá 12:30-14:00 er námskeið fyrir eldri börn fædd 1996-1998 og kostar það 2.500 krónur. Lögð verður sérstök áhersla á þjálfun í smærri hópum auk einstaklingsþjálfunar fyrir eldri þátttakendur skólans. Handboltaskóli Vals verður með glæsilegu sniði, þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og unnið verður í undirstöðuatriðum. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skólastjóri verður Óskar Bjarni Óskarsson, meistaraflokksþjálfari Vals. Tekið er við skráningum á netfanginu skar@valur.is">oskar@valur.is og á skrifstofu félagsins.
»
13.05.2009 09:02:53 / valurhb7kv
Miðvikudaginn 20.maí verður uppskeruhátið yngri flokka Vals í handknattleik og hefst hátíðin kl 18.00 að Hlíðarenda. Leikmenn eru beðnir að mæta með bakkelsi og Valur skaffar drykki
»
28.04.2009 22:34:54 / valurhb7kv
Hvet alla til að mæta á handboltaleikinn á morgun. Við þurfum að eiga pallana, mæta í rauðu og láta vel í okkur heyra. Klukkan 18.30 verður pizzuveislu en kostnaður við hana verður 500 krónur á mann. Leikurinn sjálfur byrjar 19:30, frítt verður á leikinn fyrir alla iðkendur. Mætum á leikinn og styðjum strákana.
Bestu kveðjur
Hrabba
»
10.04.2009 09:42:29 / valurhb7kv
Pizzu partý yngri flokka
Fyrir fyrsta leik Vals og HK 16 apríl verður Pizzu Partý fyrir yngri
flokka vals, boðið verður uppá pizzur frá Eldbökunni og gos á 500. kr
og nóg verður fyrir alla og er skyldumæting fyrir alla leikmenn og
þjálfara, þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta verða að láta sinn
þjálfara vita.
Nú þurfa strákarnir okkar aðstoð og gerum við allt brjálað og mætum í
RAUÐU!!
Einnig verður boðið uppá andlitsmálun fyrir þá sem vilja.
Sá flokkur sem stendur sig best í að styðja meistaraflokkinn fær pizzuveislu í lok keppninnar og bikar á uppskeruhátíð yngri flokkanna í maí
Valur - HK fim 16.apríl kl 19.30 Vodafone höllin
ÁFRAM VALUR
»
Síður:
1 2